|
Hægt er að fara í lengri og skemmri gönguferðir í nágrenninu.
Leiðsögn er möguleg ef pantað er fyrirfram.
Hægt er að komast í
snjósleðaferðir á Mýrdalsjökli, 10 km. frá bænum.
Náttúruperlan Dyrhólaey er skammt undan og þar er hægt að fara í
bátsferðir .
Byggðasafnið
í Skógum er u.þ.b. 10 km. vestan við Sólheimhjáleigu. Einstakt safn sem
enginn ætti að láta framhjá sér fara. Í Skógum er einnig rekin hestaleiga
yfir sumarið.
Næsti þéttbýliskjarni er Vík í Mýrdal
og er hún í 25 km fjarlægð. Það er afar vinalegt þorp
sem skartar Reynisdröngum og svartri sandfjöru sem þykir með þeim fallegri
sem fyrirfinnast. Í Vík er rekin upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk yfir
sumartímann og þá er einnig ýmsar upplýsingar um sveitarfélagið að finna
heimasíðu þess.
til baka |