|
Í Sólheimahjáleigu er hægt að fá gistingu fyrir allt að
18 manns. 10 manns í eldra íbúðarhúsi og 8 manns í heimagistingu í húsi
húsráðenda.
Í
eldra íbúðarhúsinu er bæði í boði uppábúin rúm eða svefnpokapláss ásamt eldunaraðstöðu.
Koddi og handklæði fylgir svefnpokaplássi. Í húsi heimamanna er
einungis hægt að fá uppbúin rúm og er ekki eldunaraðstaða
þar.
Boðið er upp á morgunverð og kvöldverð ef
pantað er fyrirfram. Matstofan er í húsi húsráðenda. Matstofan er byggð út í fallegan gróinn garð og
er björt og hlýleg. Hún er jafnframt setustofa fyrir þá sem gista í
heimagistingu.
Reykingar eru bannaðar
innandýra.
Allar nánari upplýsingar um verð og gistingu er hægt að
fá í síma 487-1320, í bréfsíma 487-1305 eða tölvupósti
til baka |